Hjónin + 1
8.7.09
 

Er ekki undarlegt??

Að náttúruauðlyndir sjósins eru í eigu landsmanna og engir erlendir fjárfestar mega eiga í þeim en það sama gildi ekki fyrir aðrar náttúruauðlyndir svo sem raf- og varmaorkuna okkar?

..finnst þetta undarlegt...

Hulda Björg  13:21  



27.6.09
 

Óléttu- og sónarmyndir

Var að bæta við inná myndasíðuna okkar óléttumyndum og svo plús venjulegum 2D sónarmyndum :D

Hulda Björg  10:14  



24.6.09
 

3D sónar

Okkur hlakkar svo til að sjá strákinn sem ég geng með að við skelltum okkur í þrívíddarsónar hjá 9 mánuðum fyrir rúmri viku. Jeminn hvað þetta var gaman! Reyndar tók sónarinn sjálfur rosalega snöggann tíma, drengurinn var alveg til í að láta mynda sig í bak og fyrir og þegar við gengum út vorum við ekki viss um að þetta hefði verið þess virði þar sem þetta er ansi dýrt. En þegar við komum heim og fórum að skoða myndirnar og myndböndin skipti ég alveg um skoðun. Sá þá hversu margar myndir við fengum og vitaskuld fannst mér þetta flottasti drengur sem hefur verið myndaður þannig að þetta var bara gaman!

Var að setja myndirnar inná Flick fyrir alla að sjá...

Hulda Björg  11:54  
 

GO Jóhanna GO!

Samstarfskona mín er algjör snillingur í að hoppa en seinustu helgi var hún á móti í frjálsum íþróttum og vann þar langstökk og var þriðja í þrístökkinu... Á smáþjóðaleikunum núna fyrir skömmu vann hún svo þrístökkið og var í öðru sæti í langsökkinu. Finnst hún bara brill :D Þvílíkt dugleg að æfa svona mikið samhliða því að vera í fullri vinnu við að þróa mæliaðferðir.. skil ekki hvar hún stelur fleiri stundum til að gera þetta allt!

Til hamingju skvís :D

Hulda Björg  11:52  



20.5.09
 

Gott að hann hætti..

..í hungurverkfalli maðurinn þarna frá Alsír.

Viðurkenni fúslega að það sem ég er að fara að segja er helvíti hart en ég ætla bara að láta það flakka...

Finnst að fólk eigi ekki að ná að þvinga sínum málum í gegn með ógnunum. Viðurkenni fúslega að þetta ferli er allt of langt og mætti stytta en það er jafnlangt fyrir alla. Það er meira að segja búið að taka málið hans fyrir einu sinni og hann hefur verið uppvís að skjalafalsi.. finnst honum virkilega líklegt að hann fái að vera? Satt að segja finnst mér hann vera búinn að fyrirgera sínum rétti að fá að vera hérna.. ég verð ekki sátt ef þetta tekst hjá honum.

Gera þetta þá ekki bara allir?

Hulda Björg  14:00  



18.5.09
 

Dagarnir líða í dagsins önn...

...á ótrúlegu spítti að ég held enganvegin utan um þetta!

Helgin var alveg yndisleg!

Laugardagurinn fór í það að við Stefán skelltum okkur á ljósmyndanámskeið til að læra í bak og fyrir á nýju myndavélina sem við festum kaup á í seinasta mánuði. Grétum það vissulega að vera ekki úti í veðurblíðunni en fannst heilmikið koma út úr þessu námskeiði þannig að við vorum sátt. Vitaskuld fór kvöldið í Eurovision-gláp en að þessu sinni vorum við bara kúrandi 2 heima en ekki í brjáluðu stuði í Júrópartýi eins og í fyrra. Gleðin var í algleymingi eins og hjá flestum íslenskum heimilum að keppni lokinni, ekki bara yfir 2.sætinu heldur líka hafði Stefán unnið tæplega 30 þúsund krónur af vinnufélögum sínum á að veðja á rétt sæti.. ekki verra. Eins og alvöru hefðarhjónum sæmir fórum við svo út í kvöldgöngu eftir keppnina, í þetta sinn með myndavélina okkar í för og smelltum af helling af myndum, vopnuð þeirri þekkingu sem við höfðum keypt okkur fyrr um daginn.

Þar sem við erum svo komin með ljósmyndabakteríuna eftir námskeiðið keyptum við okkur svo þrífót í gær og fórum með hann og vélina út að hjóla. Enduðum einhversstaðar útí móa, borðuðum nesti í grasinu og tókum helling af myndum í þessu líka yndislega veðrinu sem á víst að haldast út vikuna.

Aaaah svona eiga allar helgar að vera...

Já svo skylduupplýsingarnar: 25 vikur, grindargliðnun að hrella mig en komin í meðgöngustund sem á að hjálpa og byrja í meðgöngujóga á morgun.. annars bara allt í gúddý.

Hulda Björg  14:32  



5.5.09
 

16 vikna áætlunin

Í gær hófst 16 vikna æfingaáætlun sem gengur út að það að ég eigi að geta hlaupið maraþon í lok ágúst. Stefna er sett á Reykjarvíkurmaraþonið, sem fer fram 22. ágúst. Ég er búin að vera koma mér í form í vetur og byrjaði að hlaupa úti í mars, ég hef verið að hlaupa svona 100-150 km á mánuði á þessu ári, ég vona að það sé nægur undirbúningur. Núna hefst lokaspretturinn, þar sem stífar æfingar verða fram í lok júlí.

Mig hefur langað til að hlaupa maraþon í mörg ár, en svo loksins síðasta haust ákvað ég drífa í því og byrjað markviss undirbúningur þá. Svo er bara að sjá hvort ég geti það hlaupið 42 km á mannsæmandi tíma miðað við aldur (sem fer síhækkandi) og fyrri störf.

Þið sem hafið fylgst eitthvað með síðunni okkar áttið ykkur líklegast á því að 22. ágúst er aðeins rúmri viku áður en litli grísinn okkar á að fæðast. Ég vona því að hann verði til friðs og leyfi mér að hlaupa maraþonið og gefi mér síðan 1-2 daga til að jafna mig, svo má hann alveg koma. :):)

Stefán  17:55  



17.4.09
 

Djúpt hugsi tippalingur á leiðinni

Fórum í 20 vikna sónarinn á miðvikudaginn og fengum að vita að allt væri tipp-topp. Allt af réttri stærð og gerð og á réttum stöðum :D Ljósmóðirin staðfesti svo að von væri á þessu barni 31.ágúst.

Svo sýndi hún okkur að við værum að fara að eignast strák svo ekki færi á milli mála!

Greinilegt er líka að barnið er mjög myndavænt og kann að stilla sér skemmtilega upp strax í móðurkviði.

Image and video hosting by TinyPic

Hulda Björg  11:41  






E-mail


Stefán
Hulda


Myndir

Blogg

Ella
Ása
Dísa
Gyða
Björk
Tótla
Urður
Örvar
Heiða
Hrund
Bikingpiger
Dagný Ásta
Anna og Abbi

Gríslingar

Bríet
Sara Líf
Aníta Líf
Sölvi Freyr
Adam Ernir
Sandra Dís
Hera Hrönn
Brynjar Ingi
Viktor Ágúst
Natalía Ruth
Skagabumba
Hrafnkell og Kári
Tristan og Marinó
Daníel, Pétur og Kári
Alex þór og Andri Týr
Arnar Logi og Atli Hrafn
Ísak Tumi og Marit Erla
Svala og Skarphéðinn Orri
Birkir Örn, Þorsteinn Hilmir og Þórunn Erla